föstudagur, 24. október 2008

Útrás

Norðmenn og Japanir í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ætla að draga okkur upp úr feninu. IMF lánar okkur að jafnvirði 2 milljarða dollara, ef stjórn sjóðsins samþykkir, og svo er enn ósamið um Rússagull. Kannski nokkrar skrilljónir þar. Þetta eru hreint skelfilegar upphæðir sem um er að ræða og þessir þjóðníðingar, 20 til 30 manns, hafa með heimsku sinni og græðgi skert lífskjör okkar allra stórkostlega næstu áratugi.

Ævisparnaður fólks er gufaður upp í mörgum tilfellum, peningar sem geymdir voru í sjóðum og hlutabréfum í bönkum og öðrum fyrirtækjum. Menn voru hvattir til að taka erlend lán sem nú eru að drepa þá sem þau tóku, bara út af þeim trúarbrögðum sem íslensk króna heitir. Það er búið að skerða lífeyrisréttindi mín og lífskjör og barnanna minna næstu áratugi.

Að Íslendingum er hlegið út um allan heim. Þokkalegur andskoti!!!

Forfeður okkar áttu aldrei að leggjast í þessa útrás frá Noregi, hún var mislukkuð, tók bara dálítið langan tíma að fatta það. Það er svo einboðið að við eigum að viðurkenna ósigur okkar og gefa þá yfirlýsingu út strax að stefnt skuli að Evrópusambandsaðild og fullri þátttöku í myntbandalaginu af því að við kunnum ekkert í efnahagsmálum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég er sammála dortmund. en hvað er með þessa kúgun breta eru þeir að reyna komast yfir íslendinga ég veit vel að konurnar í englandi eru fucking ófríðar en kommon þeir þurfa nú ekki að beyta hryðjuverkalögum til að sænga með íslenskum konum það þarf aðeins nokkur glös á barnum og þá eru þær til í tuskið. ég segi bara eitt ég mun aldrei hylla bresku konungsfjölskylduna, sá eini sem ég hylli er ólafur ragnar grímsson. island island uber alles!!!