
Hún er í Gospelkór Akureyrar og syngur þar Gussa til dýrðar og dillar sér með Gospelsystrum sínum sem sjást hér á myndinni. Blucher er kát að sjá og sést þarna fremst til hægri. Best að nota tækifærið og auglýsa tónleika með kórnum á sunnudaginn eftir viku í Akureyrarkirkju. Ég neyðist held ég til að mæta og tek bara þátt í fjörinu, dilla mér og klappa í takt við tónlistina eins og vitfirringur. Reyni bara að standa þetta af mér, sýna æðruleysi.
Svo er hún farin að stunda bingó af sjúklegum áhuga. Ef hún er ekki með gospelsystrum, þá er hún annað hvort á bingókvöldi eða að föndra með skjólstæðingum sínum í Víðilundi. Mér skilst að ekki megi á milli sjá hvort henni eða gamlingunum finnist það skemmtilegra, að mála á kerti, eða búa til jólakort, vera í bútasaumi, útsaumi og allra handanna bróderingum, keramiki og postulíni og ég veit ekki hvað. Hún er farin að taka pláss frá gamla fólkinu í föndrinu.
Þetta hefur verið að ágerast síðustu árin. Ég setti spurningamerki við það þegar hún fór á þjóðbúninganámskeiðið um árið. Hún saumaði sér upphlut og er farin að ganga í honum á sunnudögum og heimtar að ég komi með sér í kirkju þannig klædd. Upphlutur virkar á mig svona svipað og tanngarður í vatnsglasi, en auðvitað er þetta bara mitt vandamál. Svona er maður orðinn skemmdur af nútímanum og illa úrkynjaður. Ha, nei, ég hef engar áhyggjur af þessum pistli, Frau Blucher les ekki bloggið mitt (sem betur fer!)
3 ummæli:
Sæll mágur.
Þetta var nú skemmtileg lesning. Guð geymi þig litli púki.
Knús og koss frá Helgu.
Þú ert aldeilis hugaður. Ég myndi treysta því varlega að Blucher beri ekki bloggið augum. Hvernig var það annars með ökunámið, hætti hún eftir háðsglósur þínar á blogginu?
ó maður lifandi! dortmund þú ert sá besti penni sem ég veit um!! þú hefur fengið mig til að brosa allan hringinn eftir þessa lesningu og það á prófatíma, þú bjargar minni geðheilsu væni minn. takk fyrir þessa frábæru bloggfærslu og haltu áfram!!!
kv. kvaran
Skrifa ummæli