sunnudagur, 29. júní 2008
Spánn Evrópumeistari
Betra liðið vann, ekki spurning um það. Ég að vísu hélt með Þjóðverjum og varð enn sannfærðari í stuðningi mínum við þá eftir að ég las eitthvert rasískt bull haft eftir hinum afgamla þjálfara Spánverja Aragones eða hvað hann nú heitir annars, þar sem hann kallaði Thierre Henry hinn franska "svartan skít". Þetta eru ömurleg ummæli og barnaleg og þess vegna mátulegt á helvítis kallinn að Spánverjar hefðu tapað leiknum. En það gerðu þeir ekki, þeir voru bara svo miklu betri en Þjóðverjarnir sem áttu engan veginn skilið að fá eithvað meira en silfur á þessu móti - í rauninni of mikið fyrir þá. Rússar eða Tyrkir hefðu mjög gjarnan mátt hirða það í staðinn. Spánverjar eru mjög vel að sigrinum komnir, langbesta lið mótsins sem spilaði alla leikina af krafti og ótrulegri ákefð. Viva Espania!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Smá tékk til að sjá hvurt þetta virkar. Ritstj. og ábm.
Hæ pabbi, hvað helduru að þú nennir að vera lengi með þessa síðu? Þin besta dóttir Helena
Skrifa ummæli